ÍBV sigraði FH með þremur mörkum gegn tveimur, 3:2, í 11. umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld í Vestmannaeyjum. ÍBV leiddi með þremur mörkum í hálfleik en liðið var mun sterkari aðilinn þar.
Í síðari hálfleik gaf FH í og náðu þær tveimur mörkum. Cloé Lacasse gerði tvö mörk ÍBV og Sigríður Lára Garðarsdóttir eitt. Hjá FH skoraði Þóra Björk Eyþórsdóttir eitt og Rannveig Bjarnadóttir annað.
ÍBV | 3:2 | FH | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Rannveig Bjarnadóttir (FH) skorar 3:2. Rannveig setur boltann í skeytin eftir að boltinn datt fyrir fætur hennar úr horninu. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |