HK vann sannfærandi 4:1-sigur á Þór í toppslag í Inkasso-deild karla í fótbolta í dag. HK er því enn í öðru sæti, nú aðeins einu stigi frá toppliði ÍA. Með sigri hefði Þór farið upp í annað sætið.
Brynjar Jónasson kom HK yfir strax á fimmtu mínútu og Zeiko Lewis bætti við tveimur mörkum fyrir leikhlé og var staðan í hálfleik 3:0. Brynjar skoraði sitt annað mark á 55. mínútu, áður en Jóhann Helgi Hannesson skoraði sárabótamark í blálokin.
Á Grenivík vann Leiknir mikilvægan 1:0-sigur á Magna í fallslag. Ólafur Hrannar Kristjánsson skoraði sigurmarkið á 15. mínútu. Leiknir er nú í sjöunda sæti með 18 stig en Magni á botninum með aðeins tólf stig.