Martinez á förum frá KA?

Cristian Martinez.
Cristian Martinez. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Spænski markvörðurinn Cristian Martinez gæti verið á förum frá úrvalsdeildarliði KA í knattspyrnu en hann hefur leikið hérlendis síðan 2015. 

Netmiðillinn 433.is segist hafa heimildir fyrir því að KA og Martinez hafi rift samningi markvarðarins. 

Martinez lék með KA á nýafstöðnu keppnistímabili en var áður tvö keppnistímabil hjá Víkingum í Ólafsvík. Hann missti af síðustu átta umferðum tímabilsins vegna meiðsla, og af tveimur leikjum fyrr um sumarið. Aron Elí Gíslason leysti hann af hólmi og varði mark KA í tíu leikjum af 22 í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert