Dregið í bikarnum í dag

Stjarnan er ríkjandi bikarmeistari karla.
Stjarnan er ríkjandi bikarmeistari karla. mbl.is/Valli

Dregið verður til 32-liða úrslitanna í Mjólkurbikarkeppni karla í knattspyrnu í höfuðstöðvum KSÍ klukkan 15 í dag.

Öll tólf liðin í Pepsi Max-deildinni verða í pottinum í dag og átta lið úr Inkasso-deildinni en Víkingur Ólafsvík, Þór Akureyri, Leiknir Reykjavík og Haukar féllu úr leik í fyrstu umferðinni.

Stjarnan á titil að verja en Garðabæjarliðið vann Breiðablik í úrslitaleiknum á síðustu leiktíð þar sem úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert