Stefán hættur með Leikni

Stefán Gíslason hefur látið af störfum sem þjálfari Leiknis.
Stefán Gíslason hefur látið af störfum sem þjálfari Leiknis. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stefán Gíslason hefur látið af störfum sem þjálfari knattspyrnuliðs Leiknis Reykjavíkur en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Stefáni bauðst þjálfarastarf í Belgíu sem hann ákvað að þiggja samkvæmt heimasíðu Leiknis en ekki kemur fram í tilkynningunni hjá hvaða liði Stefán mun þjálfa. 

Sigurður Heiðar Höskuldsson sem verið hefur verið aðstoðarmaður Stefáns hjá Leikni mun taka við liðinu en þetta verður hans fyrsta starf sem aðalþjálfari. Stefán tók við Leiknismönnum í nóvember á síðasta ári en Leiknir situr í sjöunda sæti 1. deildarinnar með 12 stig en liðið mætir Keflavík á morgun á útivelli í níundu umferð deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert