Knattspyrnumaðurinn Kristófer Konráðsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Stjörnuna en þetta kemur fram á Facebook-síðu Garðbæinga. Kristófer er 21 árs gamall en hann lék síðast með KFG í 2. deildinni síðasta sumar.
Hann á að baki ellefu leiki í efstu deild með Stjörnunni en hann lék með Þrótti Reykjavík í 1. deildinni, sumarið 2018. Þá á hann að baki 22 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands, þar af þrjá leiki fyrir U21 árs landsliðið.
„Kristófer er uppalinn leikmaður Stjörnunnar og hefur verið í námi í Bandaríkjunum undanfarin misseri. Velkominn heim Kristófer!“ segir á Facebook-síðu Stjörnunnar.