Komast Framarar á toppinn?

Rúnar Kristinsson hefur gert afar vel með Fram.
Rúnar Kristinsson hefur gert afar vel með Fram. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Með sigri á Stjörnunni í sjöttu umferð í kvöld kæmust Framarar á toppinn í Bestu deild karla í knattspyrnu. 

Liðin etja kappi í Garðabænum klukkan 19.15 í kvöld en báðum liðum hefur gengið vel í upphafi tímabils.

Stjarnan hefur unnið þrjá leiki í röð eftir að hafa tapað fyrstu tveimur og Framarar hafa einungis tapað fyrri Íslandsmeisturum Víkings R.

Fram er í þriðja sæti deildarinnar með tíu stig. Þá er Stjarnan í fimmta með níu. 

Stjörnuliðið á einnig tækifæri á að komast á toppinn en þá þyrfti liðið að vinna Framara með sex marka mun. 

Leikurinn verður í beinni textalýsingu á mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert