Grét oft á dag á fyrri hluta meðgöngunnar

„Ég held ég hafi grátið oft á dag í 22 vikur,“ sagði Dagný Brynjarsdóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, í Dætrum Íslands, vefþætti mbl.is sem fram­leidd­ur er af Studio M.

Dagný, sem er þrítug, eignaðist sitt fyrsta barn í júní 2018, soninn Brynjar Atla, ásamt eiginmanni sínum, Ómari Páli Sigurbjartssyni.

„Ég vildi ekki verða ólétt á þessum tímapunkti en svo áttaði ég mig á því að þetta væri kraftaverk og ég er ótrúlega þakklát fyrir þetta í dag,“ sagði Dagný meðal annars.

Dagný er í nærmynd í fjórða þætti af Dætrum Íslands en hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

mbl.is

LEIKIR Í DAG - 26. APRÍL

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 26. APRÍL

Útsláttarkeppnin