Tal Ben Haim samdi við Chelsea

Ben Tal Haim er genginn til liðs við Chelsea.
Ben Tal Haim er genginn til liðs við Chelsea. Reuters

Bikarmeistarar Chelsea gengu í dag frá fjögurra ára samningi við ísrelska varnarmanninn Tal Ben Haim. Hann kemur til Chelsea frá Bolton á frjálsri sölu þar sem samningur hans við Bolton er að renna út. Honum stóð einnig til boða að fara til Newcastle en valdi frekar að fara til Lundúnarliðsins.

Ben Tal Haim er þriðji nýji leikmaðurinn í herbúðum Chelsea í sumar. Áður hafði liðið fengið miðjumanninn Steve Sidwell frá Reading og framherjann Claudio Pizarro. Innkaupastefna Chelsea virðist hafa tekið breytingum frá fyrri árum því allir koma leikmennnirnir til Lundúnarliðsins án greiðslu þar sem samningar þeirra voru útrunnir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert