Skörð höggvin í lið Chelsea

Cesc Fábregas verður ekki með Chelsea annað kvöld.
Cesc Fábregas verður ekki með Chelsea annað kvöld. AFP

Chelsea verður án þeirra Cesc Fábregas og Alváro Morata þegar liðið sækir Arsenal heim í síðari viðureign Lundúnaliðanna í undanúrslitum ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu annað kvöld.

Þeir Fábregas og Morata glíma báðir við meiðsli og eru ekki leikfærir að sögn Antonio Conte, knattspyrnustjóra Chelsea. Þá eru markvörðurinn Thibaut Courtois, miðvörðurinn Cary Cahill og miðjumaðurinn Dany Drinkwater allir tæpir fyrir leikinn.

Fyrri leik liðanna á Stamford Bridge lyktaði með markalausu jafntefli. Sigurliðið mætir annaðhvort Manchester City eða Bristol City í úrslitaleik á Wembley í næsta mánuði en City hafði betur á heimavelli gegn Bristol, 2:1, í fyrri viðureign liðanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert