Tottenham og C-deildarlið Rochdale skildu jöfn, 2:2, í ótrúlegum leik í 5. umferð enska bikarsins.
Væntanlega voru allir búnir að bóka sigur Tottenham er markahrókurinn Harry Kane kom liðinu í 2:1. á 88. mínútu úr vítaspyrnu en svo fór nú aldeilis ekki.
Steve Davies var hetja liðsins í uppbótartíma er hann jafnaði metin og tryggði liðinu annan leik sem fram fer á Wembley.
Ian Henderson kom Rochdale yfir á 45. mínútu á Spotland-vellinum fyrir framan 8.500 áhorfendur.
Lucas Moura opnaði hins vegar markareikning sinn fyrir liðið eftir komu sína frá Paris Saint Germain í janúarglugganum og jafnaði metin á 59. mínútu.