„Ég læstist í bakinu“

Birkir Bjarnason.
Birkir Bjarnason. Ljósmynd/avfc.co.uk

Ég læstist eitthvað í bakinu í upphituninni fyrir leikinn og gat þar að leiðandi ekki spilað en ég átti að byrja leikinn,“sagði landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason í samtali við mbl.is.

Birkir missti af leik sinna manna í Aston Villa á móti Cardiff City í ensku B-deildinni í gærkvöld vegna meiðslanna þar sem Aston Villa fagnaði 1:0 sigri.

„Sjúkraþjálfararnir eru bjartsýnir að ég verði klár fyrir föstudaginn. Það kemur í ljós á morgun en þá get ég vonandi æft með liðinu,“ sagði Birkir en Aston Villa tekur á móti Leeds United á föstudagskvöldið.

Birkir hefur spilað vel með liði Villa síðustu vikurnar og hefur fengið mikið lof í enskum fjölmiðlum og hjá stuðningsmönnum liðsins en Aston Villa er í fjórða sæti deildarinnar og á enn möguleika á að ná öðru sætinu. Tvö efstu liðin tryggja sér sæti í úrvalsdeildinni. Liðin í sætum 3-6 fara í umspil um þriðja lausa sætið í úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert