United spyrst fyrir um Boateng

Jerome Boateng gæti spilað á Englandi á næstu leiktíð.
Jerome Boateng gæti spilað á Englandi á næstu leiktíð. AFP

Manchester United hefur haft samband við þýska félagið Bayern München varðandi kaup á Jerome Boateng, leikmanni Þýskalandsmeistaranna. Sky í Þýskalandi greinir frá. 

Talið er að United þurfi að reiða fram um 45 milljónir punda til að fá varnarmanninn yfir til Englands, en hann lék áður með Manchester City. Boateng er á meðal fremstu varnarmanna Þýskalands og á hann 73 landsleiki að baki. 

United er ekki eina félagið sem hefur áhuga á Boateng því PSG hefur einnig sett í sig í samband við Bayern. United hefur verið orðað við fleiri miðverði, eins og Harry Maguire, Toby Alderweireld og Yerry Mina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert