Tottenham endurheimtir tvo sterka leikmenn fyrir leikinn gegn West Ham í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
Eriksen hefur verið frá í síðustu fjórum leikjum Tottenham vegna meiðsla á kviði en Daninn er einn af lykilmönnum Lundúnaliðsins. Þá er Mousa Dembele klár í slaginn en meiðsli í læri hafa verið að angra miðjumanninn sterka.
Dele Alli og Danny Rose verða hins vegar ekki með. Þeir eru á sjúkralistanum en stutt er í endurkomu þeirra.