Gylfi Þór Sigurðsson prýðir forsíðu á leikskrá Everton fyrir leikinn gegn Crystal Palace en liðin eigast við í ensku úrvalsdeildinni á Goodison Park á sunnudaginn.
Gylfi hefur verið í miklu stuði með Everton-liðinu í síðustu leikjum og hefur skorað þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum liðsins. Hann skoraði tvö í 3:0 sigri á móti Fulham og hann tryggði svo sínum mönnum 2:1 útisigur gegn Leicester með frábæru marki.
Everton endurheimtir Yerry Mina, James McCarthy og André Gomes fyrir leikinn á móti Crystal Palace en þeir hafa verið frá keppni vegna meiðsla og hafa ekkert komið við sögu á tímabilinu.