Joe Cole, fyrrverandi samherji Eiðs Smára Guðjohnsen hjá Chelsea, hefur ákveðið að láta staðar numið sem atvinnumaður í knattspyrnu.
Cole lauk ferlinum með Tampa Bay í Bandaríkjunum en hann er 37 ára gamall. Cole varð enskur meistari með Eiði hjá Chelsea.
Hann kom upp í gegnum yngri flokka starfið hjá West Ham og fékk þar tækifæri í ensku úrvalsdeildinni eins og fleiri snjallir leikmenn. Hann lék einnig með Liverpool, Lille, Aston Villa og Coventry. Auk þess spilaði Cole 56 landsleiki fyrir England.