Blóðtaka fyrir Arsenal og England

Jordan Nobbs (5) fagnar marki í landsleik.
Jordan Nobbs (5) fagnar marki í landsleik. AFP

Jordan Nobbs, leikmaður Arsenal og enska landsliðsins, gæti misst af lokakeppni HM í knattspyrnu eftir að hafa slitið krossband. 

HM kvenna hefst í júní í Frakklandi og væntanlega verður Nobbs í kapphlaupi við tímann. Ekki er búist við því að hún spili meira með Arsenal á tímabilinu. 

Nobbs hefur leikið 56 A-landsleiki fyrir England og er varafyrirliði liðsins og auk þess fyrirliði Arsenal. 

„Ég er sorgmædd í augnablikinu en get ekki fullþakkað knattspyrnuáhugafólki fyrir skilaboðin og stuðninginn,“ skrifaði Nobbs á samfélagsmiðlum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert