Svissneski landsliðsmaðurinn Xherdan Shaqiri átti frábæra innkomu í síðari hálfleik í viðureign Liverpool og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Shaqiri kom inn á í stöðunni 1:1 á 70. mínútu og óhætt er að segja að hann hafi breytt leiknum. Svisslendingurinn skoraði tvö mörk á 73. og 80. mínútu og Liverpool hrósaði sannfærandi 3:1 sigri gegn erkifjendum sínum.
„Allir leikmenn eru ekki ánægðir þegar þeir eru á bekknum og það er alveg skiljanlegt. En það eru bara 11 leikmenn sem geta spilað og það er ákvörðun þjálfarans að velja liðið. Ég reyni alltaf að setja mark mitt á leikinn þegar ég kem inn á að byrja. Ég átti góða innkomu í dag með þessum tveimur mörkum og ég er mjög ánægður með það,“ sagði Shaqiri eftir leikinn.
Shaqiri hefur skorað 5 mörk í þeim 13 leikjum sem hann hefur komið við sögu í deildinni á leiktíðinni en í sex þeirra hefur hann komið inn á sem varamaður.