Salah fer ekki í leikbann

Mohamed Salah.
Mohamed Salah. AFP

Egyptinn Mohammed Salah mun ekki sæta refsingu fyrir meintan leikaraskap í sigri Liverpool á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í gær. 

Málið verður ekki tekið fyrir hjá aganefnd enska knattspyrnusambandsins eftir því sem fram kemur hjá Sky Sports. 

Málið var þó athugað en taktar Salah þóttu ekki vera til þess fallnir að blekkja dómara vísvitandi samkvæmt frétt Sky. 

Framundan eru snúnir leikir fyrir toppliðið Liverpool en það mætir á næstunni bæði Arsenal og Manchester City. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert