Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson átti góðan leik á miðjunni fyrir Cardiff sem vann góðan 1:0 útisigur gegn Leicester í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Aron Einar fékk 8 í einkunn hjá netmiðlinum WalesOnline.com og hjá Sky Sports fékk hann 6 í einkunn.
Gylfi Þór byrjaði óvænt á varamannabekknum hjá Everton sem tapaði fyrir Brighton á útivelli 1:0. Gylfi fékk 6 í einkunn fyrir frammistöðu sína hjá Sky Sports þær 25 mínútur sem hann spilaði.