Gylfi jafnaði Eið Smára

Gylfi í baráttunni í dag.
Gylfi í baráttunni í dag. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson skoraði mark Everton í 1:2-tapi fyrir Southampton á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Gylfi er nú kominn með 55 mörk í deildinni og jafnaði hann Eið Smára Guðjohsnen sem markahæsti Íslendingurinn í efstu deild Englands með marki sínu. 

Gylfi er búinn að skora 34 mörk fyrir Swansea, átta fyrir Tottenham og nú þrettán með Everton. Hann er búinn að skora níu mörk í deildinni í vetur, en hann á best ellefu deildarmörk á einni leiktíð með Swansea. 

James Ward-Prowse kom Southampton yfir í leiknum með marki á 50. mínútu og forskot Southampton tvöfaldaðist þegar Lucas Digne skoraði sjálfsmark. Gylfi lagaði stöðuna í uppbótartíma en nær komst Everton ekki. 

Everton er í 11. sæti deildarinnar með 30 stig og Southampton í 15. sæti með 22 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert