Kemur Cantona til starfa hjá United?

Eric Cantona.
Eric Cantona. AFP

Eric Cantona gæti verið að snúa aftur til Manchester United en Frakkinn þykir líklegastur til að taka við starfi yfirmanns knattspyrnumála hjá félaginu.

Manchester United stefnir að því að ráða yfirmann knattspyrnumála og veðbankar á Englandi eru með Cantona efstan á blaði en þessi 52 ára gamli Frakki er í guða tölu hjá mörgum stuðningsmönnum félagsins. Hann lék með liðinu frá 1992 til 1997 þar sem hann vann fjóra Englandsmeistaratitla með liðinu og tvo bikarmeistaratitla.

Cantona lagði skóna óvænt á hilluna árið 1997. Hann hefur ekkert starfað við fótboltann síðan þá að því undanskildu að gegna starfi yfirmanns knattspyrnumála hjá bandaríska liðinu New York Cosmos frá 2011 til '12.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert