Chelsea hefur staðfest að leikmaður liðsins Callum Hudson-Odoi hafi orðið fyrir kynþáttafordómum í leiknum á móti Dinamo Kiev í Evrópudeildinni á dögunum.
Á lokakafla leiksins gáfu áhorfendur frá sér apahljóð sem er ekki óþekkt hjá fótboltabullum. Kom leikmaðurinn því á framfæri við fyrirliða Chelsea, Cesar Azpilicueta, sem greindi dómara leiksins frá atvikinu sem og eftirlitsmanni UEFA.