Rafael Benítez knattspyrnustjóri Newcastle vill fá spænska miðjumanninn Juan Mata til liðs við sig í sumar fari svo að hann verði áfram við stjórnvölinn hjá enska úrvalsdeildarliðinu.
Benítez á enn eftir að staðfesta hvort hann verði áfram hjá Newcastle en að því er fram kemur í enskum fjölmiðlum í dag er Mata einn af þeim leikmönnum sem stjóri Newcastle vill fá til félagsins.
Samningur Mata við Manchester United rennur út í sumar og hefur hann ekki skrifað undir nýjan samning við félagið. Mata hefur verið orðaður við Barcelona en hann kom til Manchester United frá Chelsea árið 2014.