Chelsea fær leyfi til að ræða við Lampard

Frank Lampard.
Frank Lampard. AFP

Chelsea hefur fengið leyfi frá Derby County til að ræða við Frank Lampard um að taka við knattspyrnustjórastarfinu hjá félaginu.

Chelsea leitar eftirmanns Ítalans Maurizio Sarri sem er tekinn við Ítalíumeisturum Juventus en Sarri stýrði Chelsea-liðinu í aðeins eitt tímabil.

Lampard lék í 13 ár með Chelsea og var í miklum metum hjá stuðningsmönnum félagins en hann tók við stjórastarfinu hjá Derby fyrir síðustu leiktíð. Undir hans stjórn komst Derby í úrslitin í umspilinu um sæti í ensku úrvalsdeildinni en tapaði fyrir Aston Villa á Wembley í síðasta mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert