West Ham vann sanngjarnan 2:0-heimasigur á arfaslöku liði Manchester United í 6. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag.
Andriy Yarmolenko kom heimamönnum yfir á 44. mínútu og Aaron Cresswell innsiglaði sigurinn með glæsilegu aukaspyrnumarki á 84. mínútu er léttleikandi lið West Ham vann nokkuð sannfærandi sigur.
Hér að ofan má sjá svipmyndir úr leiknum. Hér að neðan má sjá svipmyndir úr leik Crystal Palace og Wolves.