Argentínski sóknarmaðurinn Sergio Agüero í liði Englandsmeistara Manchester City slapp án meiðsla þegar hann lenti í umferðaróhappi á Range Rover-bifreið sinni fyrir æfingu City-liðsins í dag.
Jeppabifreið Argentínumannsins skemmdist töluvert að framan en Agüero þurfti ekki að leita til læknis.
Agüero hefur skorað 9 mörk fyrir Englandsmeistarana í deildinni á tímabilinu sem eru í öðru sæti, átta stigum á eftir toppliði Liverpool. City sækir Crystal Palace heim á laugardaginn.
BREAKING Sergio Aguero involved in car crash before Man City traininghttps://t.co/nC3pNTUuBU pic.twitter.com/VXOoON6E4S
— Mirror Football (@MirrorFootball) October 16, 2019