Mourinho mætir aftur á Old Trafford

José Mourinho.
José Mourinho. AFP

José Mourinho mætir aftur á Old Trafford á sunnudaginn þegar Manchester United tekur á móti erkifjendum sínum í Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Mourinho starfar fyrir Sky Sport sjónvarpsstöðina og hann verður einn af sérfræðingum stöðvarinnar á leiknum.

Mourinho var rekinn frá störfum sem knattspyrnustjóri Manchester United í desember í fyrra. Fyrsta heimsókn Mourinho á Old Trafford eftir brottreksturinn var í ágúst en hann var sérfræðingur Sky Sports þegar United burstaði Chelsea 4:0 í fyrstu umferðinni.

Liverpool trónir á toppnum með fullt hús stiga eftir átta umferðir en Manchester United er í tólfta sæti deildarinnar, er 15 stigum á eftir Liverpool og er aðeins tveimur stigum frá fallsæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert