Eiður og Margrét Lára ekki sátt við hlutverk Gylfa (myndskeið)

Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur spilað aftar á vellinum en oft áður með Everton í síðustu leikjum. Virðist hann ekki fá leyfi til að sækja mikið undir stjórn Carlo Ancelotti. 

Tómas Þór Þórðarson fór yfir leik Gylfa og Everton með þeim Margréti Láru Viðarsdóttur og Eið Smára Guðjohnsen í Vellinum á Símanum sport í kvöld. Voru þau Margrét og Eiður sammála um að staðan væri ekki sú besta fyrir Gylfa, þótt hann leysti hana vel. 

Þetta áhugaverða innslag má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert