Everton fór upp í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu með því að leggja Crystal Palace að velli, 3:1, á Goodison Park í dag.
Liðið er aðeins stigi á eftir Tottenham í 5. sæti og fjórum stigum á eftir Chelsea í 4. sætinu, en bæði lið eiga þó leik til góða.
Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Everton og lék fyrstu 85 mínúturnar.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.