Markvörðurinn ungi Patrik Sigurður Gunnarsson verður áfram í herbúðum Southend í ensku C-deildinni að láni frá Brentford sem leikur í B-deildinni. Mun hann í það minnsta spila í leik gegn Oxford um helgina.
Southend fékk Patrik lánaðan á dögunum, en um svokallað neyðarlán er að ræða vegna markvarðavandræða sem upp komu vegna meiðsla aðalmarkvarðar liðsins.
Sol Campbell, þjálfari Southend, er ánægður með Patrik, sem lék í 2:3-tapi liðsins fyrir Burton um síðustu helgi.
„Patrik verður áfram hjá okkur. Hann hefur staðið sig mjög vel. Hann gat lítið gert við mörkunum og hann hafði jákvæð áhrif á okkur,“ sagði Campbell um Patrik á blaðamannafundi.