Fernandes langar að spila með Pogba

Paul Pogba
Paul Pogba AFP

Bruno Fernandes, miðjumaður Manchester United, segist ólmur vilja spila með liðsfélaga sínum Paul Pogba í sumar en Frakkinn hefur verið meiddur síðan Fernandes var keyptur til félagsins í janúar.

Portúgalinn hefur farið frábærlega af stað í Manchester og varð strax vinsæll meðal stuðningsmanna liðsins en Pogba hefur verið mikið meiddur í vetur og orðaður við brottför frá félaginu. Þá eru forráðamenn United sagðir þreyttur á miðjumanninum sem sjálfur hefur sagst vilja róa á önnur mið. Fernandes vill þó gjarnan spila með leikmanninum sem hann telur einn þann besta í heimi.

„Paul er einn besti leikmaður Manchester og einn sá besti í heimi að mínu mati,“ sagði Fernandes í spjalli á samfélagsmiðlinum Instagram. „Hann er búinn að vera meiddur síðan ég kom en tækifærið til að spila með honum er frábært. Þú vilt spila með þeim bestu,“ bætti hann við. Pogba hefur aðeins spilað átta leiki á tímabilinu.

Bruno Fernandes
Bruno Fernandes AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert