Knattspyrnukempan Leighton Baines er með tilboð frá Everton um að framlengja samning sinn við félagið um eitt ár. Bakvörðurinn er 35 ára gamall en hann gekk til liðs við félagið í Bítlaborginni sumarið 2007.
Baines skrifaði undir 12 mánaða samning á síðasta ári sem rennur út í lok mánaðar en hann hefur aðeins spilað sex leiki það sem af er tímabils. Hann spilaði síðast gegn Manchester United í 1:1-jafntefli á Goodison Park í mars en það var leikur 417 hjá honum í treyju Everton. Hann er þrettándi leikjahæsti leikmaður félagsins frá upphafi.
Þeir Maarten Stekelenburg, markvörður, Cuco Martina, varnarmaður og Oumar Niasse, framherji, verða einnig samningslausir í sumar en félagið hefur ekki boðið þeim nýjan samning samkvæmt heimildum Sky Sports.