Jafntefli í Newcastle (myndskeið)

Newcastle og Aston Villa gerðu 1:1-jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á St. Jame's Park í Newcastle í dag. 

Dwight Gayle kom Newcastle yfir 68. mínútu áður en Ahmed El Mohamady jafnaði metin fyrir Aston Villa á 83. mínútu.

Newcastle er í þrettánda sæti deildarinnar með 39 stig en Aston Villa er í nítjánda sætinu með 27 stig.

Leikur Newcastle og Aston Villa var í beinni útsendingu á Síminn Sport.

Leikmenn Newcastle fagna marki Dwight Gayle.
Leikmenn Newcastle fagna marki Dwight Gayle. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert