Norwich er nánast fallið úr ensku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir 1:2-tap fyrir Watford á útivelli.
Emilíano Buendía kom Norwich yfir á fjórðu mínútu en sex mínútum síðar jafnaði Craig Dawson og var staðan í hálfleik 1:1.
Danny Welbeck tryggði Watford 2:1-sigur með eina marki seinni hálfleiks á 55. mínútu en markið var afar glæsilegt.
Svipmyndir úr leiknum má sjá hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann sport.