Sheffield United gerði sér lítið fyrir og vann 3:0-heimasigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Sheffield-liðið var töluvert sterkari aðilinn og var sigurinn verðskuldaður.
Chelsea er áfram í þriðja sætinu með 60 stig, en Leicester og Manchester United geta bæði tekið fram úr Leiceseter með sigrum á morgun og mánudag. Sheffield United er í sjötta sæti með 54 stig.