Aston Villa fer vel af stað

Jack Grealish ógnar marki Fulham í London í kvöld.
Jack Grealish ógnar marki Fulham í London í kvöld. AFP

Aston Villa fer vel af stað í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og hefur unnið tvo fyrstu leiki sína. Fulham er hins vegar í vandræðum og hefur tapað fyrstu þremur. 

Liðin mættust á heimavelli Fulham í vestuhluta London í kvöld og vann Villa öruggan sigur 3:0. 

Þeirra þekktasti maður Jack Grealish skoraði fyrsta markið á 4. mínútu og Conor Hourihane bætti við öðru á 15. mínútu. Tyrone Mings skoraði þriðja markið í upphafi síðari hálfleiks og innsiglaði nánast sigurinn þótt nokkuð vær eftir af leiktímanum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert