Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, ætlar að refsa þeim aðila innan félagsins sem kjaftaði frá slagsmálum tveggja leikmanna liðsins á æfingu í vikunni.
The Athletic greindi frá því að varnarmaðurinn David Luiz og miðjumaðurinn Dani Ceballos slógust á æfingu. Segir að Ceballos hafi tæklað Luiz harkalega sem brást illa við og sló Spánverjann í andlitið með þeim afleiðingum að hann féll í jörðina blóðugur. Liðsfélagar þeirra stöðvuðu slagsmálin áður en algjörlega sauð upp úr.
Arteta sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag, fyrir leik Arsenal og Leeds í úrvalsdeildinni um helgina, og þar gerði hann lítið úr uppákomunni. Hann er engu að síður æfur út í þann sem kjaftaði frá.
„Þetta var ekkert. Það er keppnisskap í mönnum á æfingu og þeim lendir saman, það gerist alltaf. Ég hef meiri áhyggjur af því að einhver sagði frá þessu, lak þessu í fjölmiðla,“ sagði Arteta og hótaði því að refsa þeim sem svíkja þann trúnað sem á að ríkja milli liðsfélaga.