Arsenal er áfram í ellefta sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir markalaust jafntefli við Crystal Palace á Emirates-vellinum í London í kvöld.
Liðið er nú með 24 stig, tveimur á eftir Aston Villa, Chelsea og West Ham. Crystal Palace er áfram í þrettánda sætinu, nú með 23 stig.
Leikurinn var tilþrifalítill en James Tomkins var nærri því að koma Palace yfir á 38. mínútu þegar hann skallaði í þverslá. Rétt á eftir varði Bernd Leno í marki Arsenal glæsilega frá Christian Benteke.
Arsenal hélt marki sínu hreinu fjórða leikinn í röð og er nú taplaust í fimm leikjum í deild og bikar.
Rúnar Alex Rúnarsson var varamarkvörður Arsenal í leiknum.