Jóhann Berg Guðmundsson missir í kvöld af sínum þriðja leik í röð með Burnley í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en hann verður ekki með í leiknum gegn Leicester sem hefst á Turf Moor klukkan 18.
Jóhann fór meiddur af velli í leik Burnley og Fulham 17. febrúar og missti af leikjum við WBA og Tottenham, ásamt því að vera ekki klár í slaginn í kvöld.
Vonir standa til að hann verði tilbúinn á laugardaginn þegar Burnley tekur á móti Arsenal.