Everton þurfti að sætta sig við eitt stig er Crystal Palace kom í heimsókn á Goodison Park í ensku úrvaldsdeildinni í fótbolta í kvöld, en lokatölur urðu 1:1.
Everton var mun sterkari aðilinn og skapaði sér fullt af færum en Vicente Guaita í marki Palace átti stórleik og varði ítrekað frá sóknarmönnum Everton úr góðum stöðum.
Eftir markalausan fyrri hálfleik kom James Rodríguez Everton yfir á 56. mínútu með góðu skoti úr teignum. Rétt á undan átti Gylfi Þór Sigurðsson hættulegt skot að marki sem Guaita varði.
Þrátt fyrir að Everton hafi skapað sér fín færi eftir markið var það Palace sem skoraði á 86. mínútu. Varamaðurinn Michy Batshuayi kláraði þá framhjá Robin Olsen í marki Everton eftir sendingu frá Jeffrey Schlupp, sem einnig kom inn á sem varamaður. Reyndist það síðasta mark leiksins.
Gylfi Þór Sigurðsson byrjaði á varamannabekk Everton en kom inn á fyrir meiddan André Gomes á 30. mínútu. Everton er í áttunda sæti með 47 stig og Crystal Palace í tólfta sæti með 38 stig.