Enska knattspyrnufélagið Wolverhampton Wanderers, betur þekkt sem Wolves, hefur lýst sig enska meistara keppnistímabilið 2019.
Á twitter-aðgangi Wolves er félagið nú sagt vera sigurvegari í ensku úrvalsdeildinni 2018-2019.
Wolves endaði í sjöunda sæti deildarinnar á því tímabili, á eftir liðunum sex sem nú hyggjast rjúfa sig frá öðrum enskum félögum og taka þátt í stofnun nýrrar evrópskrar „ofurdeildar“.
It's probably too late for a parade 🏆🥳 pic.twitter.com/qEc24zBb7l
— Wolves (@Wolves) April 20, 2021