Vonast eftir tilboði frá Liverpool

Duje Caleta-Car í leik með Marseille í mars.
Duje Caleta-Car í leik með Marseille í mars. AFP

Króatíski knattspyrnumaðurinn Duje Caleta-Car vonast til þess að ganga til liðs við Englandsmeistara Liverpool í sumar.

Það er talkSport sem greinir frá þessu en Caleta-Car, sem er 24 ára gamall og samningsbundinn Marseille í frönsku 1. deildinni, var sterklega orðaður við Liverpool í janúarglugganum.

Liverpool ákvað hins vegar að semja við Ozan Kabak sem kom til félagsins sem lánsmaður frá Schalke í Þýskalandi.

Caleta-Car hafði vonast eftir því að ganga til liðs við Liverpool í janúar en Marseille vildi ekki missa hann á miðju tímabili.

Miðvörðurinn er uppalinn hjá Sibenik í heimalandinu en gekk til liðs vð Marseille árið 2018. Hann á að baki tólf landsleiki fyrir Króatíu og er verðmetinn á 30 milljónir punda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert