Enska knattspyrnuliðið Arsenal hefur neyðst til að hætta við æfingaferð sína til Bandaríkjanna þar sem liðið átti að taka þátt í alþjóðlegu móti á Flórída.
Sky Sports greinir frá því að kórónuveirusmit hafi komið upp innan þess hóps sem átti að fljúga vestur yfir haf á morgun og því hafi ferðin verið slegin af.
Arsenal átti að spila við Inter Mílanó á sunnudaginn kemur og síðan við sigurvegarann úr viðureign Everton og Millionarios frá Kólumbíu.
Arsenal hóf undirbúningstímabilið með tveimur leikjum í Skotlandi þar sem liðið tapaði 2:1 fyrir Hibernian og gerði jafntefli, 2:2, við meistara Rangers.