Lykilmaður Liverpool framlengir

Fabinho verður hjá Liverpool næstu árin.
Fabinho verður hjá Liverpool næstu árin. AFP

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Fabinho hefur framlengt samning sinn við enska félagið Liverpool. Ekki hefur verið gefið út hve langur nýi samningurinn er en samkvæmt heimasíðu Liverpool er um langtíma samning að ræða.

Hinn 27 ára gamli Fabinho kom til Liverpool frá Mónakó og hefur verið lykilmaður hjá liðinu síðan og átt sinn þátt í að Liverpool fagnaði Evrópumeistaratitli árið 2019 og Englandsmeistaratitli ári síðar.

Fabinho hefur leiki 86 deildarleiki með Liverpool og skorað í þeim þrjú mörk. Þá hefur hann leikið 17 landsleiki fyrir Brasilíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert