„Þetta er góð byrjun. Það er aldrei auðvelt að mæta Leeds og rígurinn er mikill,“ sagði Daninn Peter Schmeichel, fyrrverandi leikmaður Manchester United, í samtali við Tómas Þór Þórðarson og Bjarna Þór Viðarsson á Símanum sport.
Manchester United byrjaði tímabilið í ensku úrvalsdeildinni með látum því liðið vann 5:1-sigur á Leeds í dag. Schmeichel var ánægður með sigurinn og sagði að um yfirlýsingu væri að ræða.
Samtalið við Schmeichel má sjá í heild sinni hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.