Brasilíumennirnir og Sílebúinn fá að spila

Brasilíumennirnir Roberto Firmino, Alisson Becker og Fabinho hjá Liverpool fá …
Brasilíumennirnir Roberto Firmino, Alisson Becker og Fabinho hjá Liverpool fá að spila gegn Leeds United á sunnudaginn. AFP

Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, hefur gefið öllum þeim 11 leikmönnum frá Suður- og Mið-Ameríku grænt ljós á að spila með félögum sínum í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Þetta þýðir að Brasilíumennirnir Alisson, Fabinho og Roberto Firmino hjá Liverpool, Gabriel Jesus og Ederson hjá Manchester City, Thiago Silva hjá Chelsea, Fred hjá Manchester United og Raphinha hjá Leeds United geta tekið þátt í leikjum liða sinna um helgina.

Auk þess getur Sílebúinn Francisco Sierralta, leikmaður Watford, tekið þátt í leik liðsins í dag.

Áður voru knattspyrnusambönd Mexíkó og Paragvæ búin að gefa grænt ljós á að Raúl Jiménez hjá Wolverhampton Wanderers annars vegar og Miguel Almirón hjá Newcastle United hins vegar mættu taka þátt í leikjum liða sinna í dag.

Knattspyrnusambönd þjóðanna fjögurra höfðu gripið til þess ráðs að nýta sér reglu FIFA sem kveður á um að þau geti krafist þess að leikmenn spili ekki fyrir félagslið sín í fimm daga eftir að landsleikjahléi lýkur sé þessum leikmönnum meinað að taka þátt í landsliðsverkefnum.

Enska úrvalsdeildin hafði ákveðið að hleypa ekki ofangreindum 11 leikmönnum ekki í landsliðsverkefni með þjóðum sínum í byrjun þessa mánaðar. Ástæðan fyrir því voru fyrirséð ferðalög til rauðmerktra landa í tengslum við kórónuveirufaraldurinn. Við endurkomu til Englands hefðu þessir leikmenn þurft að fara beint í 10 daga einangrun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert