Sýnt beint frá Anfield á mbl.is

Virgil van Dijk miðvörður Liverpool mætir sínu gamla félagi Southampton …
Virgil van Dijk miðvörður Liverpool mætir sínu gamla félagi Southampton á Anfield í dag. AFP

Liverpool tekur á móti Southampton í þrettándu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á Anfield í Liverpool klukkan 15.00 og leikurinn er sýndur beint hér á mbl.is. 

Útsendingin hefst kl. 14.30 með upphitun fyrir leikinn á Símanum Sport og er á sérvefnum Enski boltinn. Flautað er til leiks klukkan 15.00.

Liverpool er í þriðja sæti deildarinnar fyrir leiki helgarinnar með 25 stig, á eftir Chelsea með 29 og Manchester City með 26 stig. Southampton er hins vegar í þrettánda sætinu með 14 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert