Gylfi áfram laus gegn tryggingu

Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Everton, verður áfram laus gegn tryggingu fram til 17. apríl.

Þetta kemur fram í skriflegu svari við fyrirspurn RÚV.

Um síðustu helgi staðfesti lög­regl­an í Manchester í sam­tali við The Sun að Gylfi yrði laus gegn trygg­ingu til miðviku­dags­ins 19. janú­ar og hafði það fyr­ir­komu­lag verið fram­lengt í þrígang síðan hann var hand­tek­inn á heim­ili sínu á Bret­lands­eyj­um um miðjan júlí á síðasta ári, grunaður um brot gegn ólögráða ein­stak­lingi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert