Ronaldo: „Takk Anfield“

Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. AFP/Paul Ellis

Cristiano Ronaldo, sóknarmaður Manchester United, hefur þakkað Liverpool, stuðningsmönnum liðsins og stuðningsmönnum United fyrir virðingarvottinn sem allir viðstaddir á Anfield í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni á þriðjudagskvöld sýndu honum og fjölskyldu hans.

Allir á vellinum klöppuðu á sjöundu mínútu leiksins til stuðnings Ronaldo eftir að hann tilkynnti á mánudag að nýfæddur sonur hans og Georginu Rodríguez hafi fallið sviplega frá.

„Einn heimur, ein íþrótt, ein alþjóðafjölskylda. Takk Anfield. Ég og fjölskylda mín munum aldrei gleyma þessu augnabliki sem markaðist af virðingu og samúð,“ skrifaði Ronaldo á instagramaðgangi sínum í morgun og birti um leið myndskeið af lófatakinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert